Ljósmyndunarferðir á Íslandi

Ljósmyndun á landi
Eldfjöll, jöklar, fossar, fjöll og svartar strendur, á öllum árstímum. Segðu okkur hvað þú vilt mynda og við skipuleggjum leiðina og keyrum þig á staðinn.

Ljósmyndun í ferskvatni
Silfra, Þingvallavatn og Kleifarvatn: tært ferskvatn, hraunveggir og mikið skyggni. Í Silfru sést oft meira en 100 metra, nóg til að ná allri gjánni á eina mynd.

Ljósmyndun í sjó
Þaraskógar, krabbar, steinbítar og mjúkkórallar við Reykjanes, og fyrir norðan Strýturnar, jarðhitastrýtur á botni Eyjafjarðar. Strýtan kallar á meiri skipulagningu og Advanced Open Water-réttindi.
Módel fyrir myndatökur
Vantar þig módel? Við getum útvegað kafara fyrir myndir neðansjávar og fólk fyrir portrettmyndir úti í náttúrunni.
Við vinnum bæði með áhugaljósmyndurum og atvinnuljósmyndurum.
Hver ljósmyndaferð er sérsniðin ferð. Skrifaðu okkur á icedive@icedive.is og segðu okkur hvað þú vilt mynda, hvenær þú kemur og hvaða köfunarréttindi þú hefur, og við sendum þér dagskrá og verð.
