Köfunarferðir
Við bjóðum upp á köfunarferðir á eftirfarandi staði. Hafið samband fyrir meiri upplýsingar í icedive@icedive.is
Silfra
Silfra er gjá á Þingvöllum sem er fyrir löngu orðin heimsfræg fyrir sína fegurð. Skylda er að hafa þurrbúningsréttindi til að kafa þar

Bjarnagjá
Bjarnagjá er gjá með ísöltu vatni og er rétt hjá Grindavík. Þar er oft fiskur að sjá og nýverið var flaki sökkt í gjána. Staðurinn er vinsæll meðal kafara enda hægt að kafa þar í öllum veðrum.

Kleifarvatn
Kleifarvatn er stutt frá höfuðborgarsvæðinu. Vatnið er gjörinn staður til að æfa köfun. Einnig er hversasvæði sunnan megin í vatninu sem er einstakt á heimsvísu en ekki margir staðir þar sem hægt er að kafa fyrir ofan hveri.

Davíðsgjá
Davíðsgjá er önnur gjá á Þingvallarsvæðinu. Hún svipar mikið til Silfru en nær lengra út í vatnið. Þar fara innlendir kafarar mikið til að kafa enda bíður staðurinn upp á langa köfun og flottar gjár til að skoða.

Garður
Garður er sjóköfunarstaður á enda Reykjanesins. Þar er venjulega mikið af fiski og öðrum sjávardýrum til að skoða. Hámarksdýpi er um 16-18 metrar og botnlag eru steinar og sandur. Straumar geta verið sterkir þar og best að haga köfun í takt við það.

Flekkuvík
Flekkuvík er köfunarstaður rétt hja Vogum á Vatnsleysuströnd. Best er að hafa fjórhjóladrifsbíl til að komast þangað. Þar er náttúran ósnortin og fallegir þaraskógar til að kafa í. Hámarksdýpi er um 30 meterar. Aðgengi að köfunarstaðanum er erfitt og best að fara þangað með kunnugum.

Óttarsstaðir
Óttarstaðir er köfunarstaður í bakgarði
höfuðborgasvæðisins. Staðurinn er vinsæll meðal innlendra kafara. Þar
er þaraskógur, skelfiskur og venjulega mikið dýralíf. Hámarksdýpi er um
16 metrar. Aðgengi er gott og keðja á botninum til að auðvelda köfurum
að þræða sig í gegnum þaraskóginn og ná niður á dýpið þar sem venjulega
er meira af fiski að sjá.

Strýtan
Strýtan er hveraútstreymi í Eyjafirði sem hefur myndað turn sem nær frá 60-70 metra dýpi upp á 16 metra dýpi. Hún og aðrar strýtur í Eyjafirði eru einstakar þar sem venjulega fynnst álíka strýtur aðeins á mesta dýpi hafsins.

El Grillo
El Grillo er flak af bresku olíuskipi sem sökkt var í seini heimsstyrjöld á Seyðisfirði. Flakið er mjög stórt og eitt af fáum flökum sem hægt er að kafa í á Íslandi. Dekkið er á 28 metra dýpi en þar eru rúmir 40 metrar niður á hafsbotn í kringum flakið. Það tekur nokkrar kafanir til að klára að skoða þetta flak og mikið að sjá og skoða.
